Ofnbakað blómkál

graenmetis
kjotlaust

Bragðmikið og stökkt ofnbakað blómkál. Frábært sem meðlæti eða jafnvel í nestisboxið. 

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Ofnbakað blómkál

Aðferð

  1. Forhitið ofninn í 200-210˚C. Setjið bökunarpappír á ofnplötuna.

  2. Skolið og skerið blómkálið í litla bita eða þvert í flatar blómkálssteikur. 

  3. Skerið smjörið í litla bita.

  4. Raðið blómkálinu jafnt á ofnplötuna. Setjið smjörið í litlum bitum hér og þar yfir blómkálið og dreypið olíu yfir. Kryddið með hvítlauksdufti, salti, paprikudufti og pipar – eða eftir smekk. Blandið blómkálinu létt saman beint á plötunni þannig að allir bitarnir fái örlítið af fitu og kryddi.

  5. Bakið blómkálið í 15–25 mínútur eða þar til það er mjúkt og gyllt í köntunum. Athugið að smærri bitar þurfa skemmri bökunartíma en stærri bitar lengri.

Baka má annað grænmeti með t.d. rauðrófur, brokkolí, sætar kartöflur, gulrófur og eggaldin eða notið það sem til er í ísskápnum. Ef þið eigið grænt pestó er gott að dreypa því yfir blómkálið áður en það er borið fram.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Blómkál
g
Smjör (valkvætt - eða olía)
0.5 
msk
Olía
0.25 
tsk
Hvítlauksduft (eða pressaður hvítlaukur)
0.25 
tsk
Salt
0.15 
tsk
Paprikuduft
0.15 
tsk
Pipar
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti