Kókoskúlur

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einfaldur og næringarríkur eftirréttabiti sem er stútfullur af trefjum.

Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Kókoskúlur

Aðferð

  1. Malið haframjöl í fínt mjöl í matvinnsluvél eða litlum hakkara.

  2. Setjið haframjöl, kakó, hnetusmjör og döðlusíróp í matvinnsluvél, lítinn hakkara eða skál. Maukið eða hrærið þar til úr verður þéttur og vel blandaður massi.

  3. Ef deigið er þurrt, bætið vatni smátt og smátt út í þar til rétt þykkt og áferð næst.

  4. Setjið kókosmjöl á lítinn disk.

  5. Mótið litlar kúlur úr deigblöndunni og rúllið síðan hverri kúlu upp úr kókosmjöli. 

Kúlurnar geymast vel í ísskáp í loftþéttu boxi í allt að 5-7 daga auk þess sem þær geymast vel í frysti í allt að 4 vikur.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir
Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir

Innihald

8 skammtar
dl
Haframjöl (eða möndlumjöl eða hreint próteinduft)
0.75 
dl
Kakó
0.5 
dl
Hnetusmjör
0.5 
dl
Döðlusíróp (eða hlynsíróp)
1.5 
msk
Vatn (eftir smekk)
msk
Kókosmjöl (til að velta upp úr)

Grunnuppskrift miðast við 8 skammta.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti