Ofnbakaður heill kjúklingur
Heill kjúklingur í ofni er þægilegur réttur þar sem ofninn sér um megnið af vinnunni. Útkoman er nærandi og heimilisleg máltíð en jafnframt líka hátíðleg. Kaldur kjúklingur er líka frábær daginn eftir.

Heill kjúklingur í ofni er þægilegur réttur þar sem ofninn sér um megnið af vinnunni. Útkoman er nærandi og heimilisleg máltíð en jafnframt líka hátíðleg. Kaldur kjúklingur er líka frábær daginn eftir.

Forhitið ofninn í 190°C.
Komið kjúklingnum fyrir í hæfilega stóru eldföstu móti eða fati.
Notið eldhúsbréf til að þurrka sýnilega bleytu af kjúklingnum.
Penslið olíu jafnt yfir kjúklinginn með pensli eða höndum. Ef hendur eru notaðar er best að þvo sér vel með sápu og vatni beint á eftir.
Stráið salti og kryddblöndu að eigin vali jafnt yfir allan kjúklinginn.
Ef sítróna er notuð, skolið hana, skerið í fernt og setjið inni í kjúklinginn.
Setjið kjúklinginn inn í ofn og eldið í um 45–50 mínútur á hvert kg (oftast 60–75 mínútur alls, eftir stærð).
Kjúklingurinn er klár þegar safinn sem lekur úr leggnum er tær og ekki bleikur. Ef þið notið hitamæli á hann að sýna um 74°C í miðri bringu.
Leyfið kjúklingnum að hvíla í 10 mínútur áður en þið skerið hann. Þá helst safinn betur í kjötinu og það verður mýkra og safaríkara.
Nýtið síðustu 20 til 30 mínúturnar í ofninum til að elda meðlæti. Setjið til dæmis sætar kartöflur eða venjulegar kartöflur, rósakál, brokkolí, blómkál, gulrætur eða annað rótargrænmeti með kjúklingnum í ofninn. Einnig má nota annað ferskt eða frosið grænmeti sem til er á heimilinu.
Gott er að bjóða upp á brún hrísgrjón, ferskt salat, skorið grænmeti og einfalda heita eða kalda sósu með réttinum.