Þorskur með hnetuhjúp
Safaríkur þorskur með stökkum pistasíuhjúp, borinn fram með silkimjúkri sætkartöflumús.

Safaríkur þorskur með stökkum pistasíuhjúp, borinn fram með silkimjúkri sætkartöflumús.

Saxið pistasíur smátt. Skolið sítrónuna, raspið börkinn og kreistið safann.
Blandið pistasíuhnetum, sítrónusafa og berki vel saman í skál.
Hitið ofninn í 200°C.
Roðflettið fiskinn ef þið viljið og skerið hann svo í passlega bita.
Setjið bökunarpappír á ofnplötu, raðið þorskbitunum ofan á bökunarpappírinn og penslið sinnepi ofan á fiskinn. Skiptið hnetublöndunni síðan jafnt ofan á bitana.
Bakið fiskinn í ofninum í 12–15 mínútur. Reynið að tímasetja þannig að fiskurinn sé tilbúinn á svipuðum tíma og kartöflurnar og lauksmjörið.
Afhýðið og skerið sætu kartöflurnar í litla bita.
Hitið vatn í potti með örlitlu salti og fáið suðuna upp. Sjóðið kartöflubitana í 10-15 mínútur eða þar til þeir eru mjúkir í gegn. Sigtið vatnið frá setjið kartöflubitana í skál.
Kreistið safann úr appelsínu og hellið yfir kartöflurnar. Bætið við smá salti og pipar og stappið vel saman.
Takið hýðið af skarlottulauk og hvítlauk og saxið smátt. Saxið einnig chillí smátt.
Hitið smjör og olíu saman í potti við miðlungshita. Bætið skarlottulauk og hvítlauk út í og steikið í stutta stund eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Bætið chillí út í og steikið í um eina mínútu til viðbótar. Setjið til hliðar.
Berið bökuðu þorskbitana fram með brúnuðu lauksmjöri og sætkartöflumús.
Gott er að skera niður ferskt grænmeti svo sem gúrku, tómata, papriku, blómkál eða brokkolí og bera fram með réttinum. Einnig má bæta við ferskri steinselju, salatblöndu eða niðurskornum vínberjum.
Hnetuhjúpurinn má vera úr ýmsum hnetum, fræjum eða höfrum t.d. heslihnetum, pekanhnetum, möndlum, graskerfræjum eða sólblómafræjum. Gott dæmi: 30 g heslihnetur, 30 g hafrar og 10 g graskerfræ með smá límónuberki og söxuðu kóríander.