Ofnbakað blómkál
Bragðmikið og stökkt ofnbakað blómkál. Frábært sem meðlæti eða jafnvel í nestisboxið.

Bragðmikið og stökkt ofnbakað blómkál. Frábært sem meðlæti eða jafnvel í nestisboxið.

Forhitið ofninn í 200-210˚C. Setjið bökunarpappír á ofnplötuna.
Skolið og skerið blómkálið í litla bita eða þvert í flatar blómkálssteikur.
Skerið smjörið í litla bita.
Raðið blómkálinu jafnt á ofnplötuna. Setjið smjörið í litlum bitum hér og þar yfir blómkálið og dreypið olíu yfir. Kryddið með hvítlauksdufti, salti, paprikudufti og pipar – eða eftir smekk. Blandið blómkálinu létt saman beint á plötunni þannig að allir bitarnir fái örlítið af fitu og kryddi.
Bakið blómkálið í 15–25 mínútur eða þar til það er mjúkt og gyllt í köntunum. Athugið að smærri bitar þurfa skemmri bökunartíma en stærri bitar lengri.
Baka má annað grænmeti með t.d. rauðrófur, brokkolí, sætar kartöflur, gulrófur og eggaldin eða notið það sem til er í ísskápnum. Ef þið eigið grænt pestó er gott að dreypa því yfir blómkálið áður en það er borið fram.