Bláberjaís
Kremkenndur og næringarríkur bláberjaís með kasjúhnetum og döðlum!
Til að mýkja hneturnar og fá kremkenndari áferð á ísinn leggið kasjúhneturnar í bleyti yfir nótt.

Kremkenndur og næringarríkur bláberjaís með kasjúhnetum og döðlum!
Til að mýkja hneturnar og fá kremkenndari áferð á ísinn leggið kasjúhneturnar í bleyti yfir nótt.

Leggið kasjúhnetur í bleyti í skál með vatni – helst yfir nótt. Ef tíminn er naumur má nota heitt vatn og láta þær liggja í 30–120 mínútur – því lengur, þeim mun mýkri verða þær.
Setjið bláberin í pott ásamt hlynsírópi og sítrónusafa. Sjóðið í 3-5 mínútur við miðlungshita og hrærið aðeins með og stappið jafnvel létt með gaffli. Leggið síðan til hliðar og leyfið að kólna nokkuð vel.
Hellið næst vatninu af kasjúhnetunum - eða setjið í sigti þannig að vatnið renni frá - og maukið þær í matvinnsluvél eða lítinn hakkara í um 2 mínútur eða þar til þær eru mjúkar og vel maukaðar.
Bætið um þriðjungi af mjólkinni í matvinnsluvélina með kasjúhnetunum og blandið áfram þar til áferðin og þykktin minnir á súrmjólk. Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og maukið áfram í um 30 sekúndur.
Saxið döðlurnar gróft, bætið þeim út í og maukið áfram þar til allt hefur blandast vel saman.
Blandið restinni af mjólkinni og kókosolíunni saman við. Takið utan af banananum, setjið hann út í og maukið vel.
Hellið helmingnum af bláberjamaukinu út í matvinnsluvélina og blandið í nokkrar sekúndur.
Hellið blöndunni í grunnt box eða brauðform og setjið í frysti. Takið boxið út á um það bil hálftíma til einnar klukkustundar fresti og brjótið upp ískristalla með gaffli eða matskeið. Eftir um það bil 2 klukkustundir bætið restinni af bláberjablöndunni saman við og hrærið vel með skafti á matskeið. Setjið aftur í frysti.
Látið ísinn þiðna í ísskáp í um 30-40 mínútur áður en hann er borinn fram. Þannig verður auðveldara að skafa úr boxinu.
Ef til er ísvél setjið blönduna í vélina og keyrið í um 20 mínútur. Setjið blönduna síðan í box og hrærið restinni af bláberjablöndunni saman við með skafti á matskeið. Frystið í nokkrar klukkustundir eða þar til ísinn er tilbúinn.
Grunnuppskriftin miðar við 4 skammta (um 1 líter af bláberjaís).