Hamborgari með linsubaunasteik og rauðrófuhummus
Þessi grænmetisborgari gefur þeim hefðbundna ekkert eftir. Með fersku salati, pikkluðum rauðlauk og bragðgóðum rauðrófuhummus færðu virkilega ljúffengan hamborgara.

Þessi grænmetisborgari gefur þeim hefðbundna ekkert eftir. Með fersku salati, pikkluðum rauðlauk og bragðgóðum rauðrófuhummus færðu virkilega ljúffengan hamborgara.

Byrjið á að skola rauðu linsurnar vandlega með vatni í sigti.
Hitið vatn í pönnu eða potti. Bætið linsubaununum út í með smá salti. Sjóðið linsurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum eða þar til þær eru mjúkar oft í kringum 10 mínútur – þær eiga að vera mjúkar en halda formi.
Afhýðið lauk og skerið niður. Takið utan af hvítlauk og saxið smátt.
Sigtið vatnið frá soðnu linsunum og setjið þær í skál ásamt lauk, hvítlauk, timjan, paprikudufti, mozzarellaosti og eggi og hrærið saman. Saltið og piprið til. Ef deigið er mjög blautt má setja smá hveiti eða haframjöl saman við.
Mótið deigið í hringlaga bollur og fletjið út eins og hamborgara (einn á mann). Steikið á báðum hliðum við meðalhita á pönnu þar til borgararnir hafa tekið smá lit. Notið smá af olíu á pönnuna ef þörf er á.
Þvoið og afhýðið rauðrófu. Sjóðið hana í vatni eða bakið í álpappír við 200°C í ofni þar til hún er farin að mýkjast.
Skerið rauðrófuna í bita og blandið saman við tilbúinn hummus þar til blandan er slétt og rjómakennd. Gott er að nota blandara eða töfrasprota.
Hitið hamborgarabrauðin í ofni eða brauðrist. Smyrjið brauð með rauðrófuhummusnum og bætið linsubaunasteik, salati og rauðlauk ofaná.
Til að einfalda undirbúning má kaupa tilbúinn sýrðan rauðlauk og hefðbundinn hummus fyrir rauðrófuhummus en hér eru auðveldar uppskriftir af hummus og sýrðum rauðlauk.
Það má líka bæta enn meira grænmeti á hamborgarann t.d. tómötum eða papriku.
1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.