Gulrófulasagna

graenmetis
kjotlaust

Grænmetislasagna með mildri ostasósu, einfaldri tómatsósu og bökuðu rótargrænmeti – næringarríkt og bragðgott.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Sinnep og afurðir úr því,
Gulrófulasagna

Aðferð

https://salteldhus.is/

    Ofnbakað grænmeti

  1. Hitið ofninn í 200°C. Setjið smjörpappír á ofnplötu.

  2. Skolið brokkolí og skerið í minni bita. Hreinsið sveppina með rökum pappír eða hreinu viskustykki og skerið í þunnar sneiðar. Skrælið gulrætur og gulrófu og skerið í litla bita eða strimla.

  3. Raðið grænmetinu á ofnplötuna. Setjið smá olíu og salt yfir grænmetið. Bakið í um 15-20 mínútur eða þar til grænmetið er eldað í gegn.

  4. Tómatsósa

  5. Takið utan af hvítlauknum og saxið hann smátt.

  6. Setjið hvítlauk, hakkaða tómata, tómatpúrru og kryddblöndu í skál og hrærið vel saman.

  7. Ostasósa

  8. Rífið ost niður með rifjárni.

  9. Blandið saman í skál rifnum osti, kotasælu, grískri jógúrt og sinnepi. Haldið eftir smá osti til að strá yfir réttinn í lokin.

  10. Bætið múskati út í blönduna. Smakkið til með örlitlu salti og pipar ef þið viljið.

  11. Samsetning

  12. Penslið smávegis af olíu í botninn á ofnföstu formi og leggið helminginn af lasagnaplötunum í botninn.

  13. Setjið ofnbakað grænmeti, tómatsósu og ostasósu lagskipt í formið. Haldið eftir smá af ostasósunni til að setja ofan á lasagnaplöturnar í lokin.

  14. Endið á því að leggja restina af lasagnaplötunum efst og smyrjið ostasósunni yfir þær. Stráið síðan rifnum osti ofan á.

  15. Lækkið ofnhitann í 180°C og bakið lasagnað í um 35-40 mín. 

Til að auka næringargildi réttarins má bæta við soðnum linsubaunum, til dæmis úr dós. Einnig má pressa smá sítrónusafa og rífa örlítið af sítrónuberki út í ostasósuna til að gefa réttinum léttan sítruskeim.

Tilvalið er að nýta það grænmeti sem til er í ísskápnum hverju sinni í réttinn. Til dæmis má bæta við lauk, skipta sveppum út fyrir kúrbít eða nota spínat í stað brokkolís.

Gott er að leyfa lasagnanu að standa í 10–15 mínútur áður en það er borið fram. Meðlæti eins og ferskt salat og/eða gróft brauð fer einstaklega vel með réttinum.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
200 
g
Brokkolí
100 
g
Sveppir
1.25 
stk
Gulrætur
150 
g
Gulrófur
1.25 
msk
Olía
0.25 
tsk
Salt
rif
Hvítlaukur
150 
g
Tómatar (tómatar í dós eða passata)
msk
Tómatpúrra
tsk
Kryddblanda (t.d. Herbs de Provance)
75 
g
Ostur (t.d. 17%)
175 
g
Kotasæla
65 
g
Jógúrt (t.d. hrein grísk jógúrt)
0.75 
tsk
Sinnep (t.d. Dijon - valkvætt)
0.1 
tsk
Múskat (valkvætt)
40 
g
Lasagnablöð (t.d. heilhveiti)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti