Kryddaðar kjötbollur
Ofnbakaðar kjötbollur með klassískum jólakryddum.

Ofnbakaðar kjötbollur með klassískum jólakryddum.

Hitið ofninn í 225°C.
Blandið saman haframjöli og mjólk í skál og látið standa í 15 mínútur.
Brjótið egg í sér skál ásamt kanil, negul, allrahanda, pipar og salti og hrærið saman.
Takið utan af lauknum og skerið hann smátt niður.
Að 15 mínútum liðnum bætið lauk, eggjablöndu og hakki í skálina með haframjölinu og mjólkinni. Hrærið vel saman þar til deig hefur myndast.
Búið til kjötbollur úr blöndunni. Gott er bleyta örlítið fingurnar inn á milli þegar er verið að móta kúlur. Raðið kjötbollunum jafnóðum á hreinan bakka eða disk.
Penslið bökunarplötu með olíu og hitið hana svo í ofninum í 5 mínútur.
Raðið kjötbollunum á heita plötu og bakið í um 10-12 mínútur.
Hristið bökunarplötuna varlega einu sinni á meðan hún er í ofninu eða prófið að snúa kjötbollunum varlega með spaða þegar þær hafa verið í ofninum í um helming tímans.
Með kjötbollum má bera fram fjölbreytt meðlæti, til dæmis hunangsgljáð rósakál, grænar baunir, rauðkál, jólasalat eða ferskt salat. Þú getur líka nýtt það grænmeti sem er á síðasta snúning í ísskápnum annað hvort eldað eða hrátt. Hýðishrísgrjón og sætar kartöflur passa einnig frábærlega vel með á diskinn.