Tempeh búddaskál

vegan
graenmetis
kjotlaust

Litrík og næringarrík skál með ríkulegu magni af próteini, fersku grænmeti og dásamlega bragðgóðri sósu.

Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Tempeh búddaskál

Aðferð

    Marinering

  1. Takið utan af hvítlauk og saxið eða pressið. Blandið hvítlauk, tamarisósu, hrísgrjónaediki, hlynsírópi og srirachasósu saman í stóra skál og hrærið vel saman.

  2. Skerið tempeh í miðlungsstóra teninga eða þríhyrninga og setjið í skál með marineringunni. Látið marinerast í 15 til 30 mínútur og snúið bitunum einu sinni á meðan.

  3. Hrísgrjón

  4. Sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum, oft í um 10-30 mínútur. Sjá nánari eldunarleiðbeiningar á hrísgrjónum hér.

  5. Grænmetið

  6. Skolið og skerið rauðkál, gúrkur, gulrætur og radísur í strimla eða sneiðar. Skerið avókadó til helminga, sjá nánar um meðhöndlun á avókadó.

  7. Sjóðið edamame baunir í litlum potti með vatni í um 5 mínútur. Hellið vatninu frá og látið baunirnar kólna.

  8. Steiking

  9. Hitið olíu á pönnu við meðalhita og steikið tempeh-bitana á öllum hliðum í um 7 til 8 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gullinbrúnir. Geymið marineringuna í skálinni.

  10. Bætið marineringunni út á pönnuna ásamt maíssterkju og smá vatni (um 1 msk fyrir 2 skammta, ef þarf) og hrærið vel saman. Látið sjóða við meðalhita í 1 til 2 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað lítillega.

  11. Samsetning

  12. Setjið soðin hrísgrjón, niðurskorið rauðkál, gúrku, gulrætur, radísur, hálft avókadó og edamame-baunir í skálar. Bætið tempeh-bitum og smá sósu í skálina og stráið að lokum sesamfræjum yfir.

Það má nota tofu í stað tempeh í þessa skál.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
rif
Hvítlaukur
60 
ml
Tamarisósa (eða sojasósa)
30 
ml
Hrísgrjónaedik
msk
Hlynsíróp
0.5 
tsk
Srirachasósa (eða önnur chillísósa - má sleppa)
230 
g
Tempeh (eða tofu)
dl
Hrísgrjón (brún hrísgrjón eða kínóa)
0.25 
stk
Rauðkál
0.5 
stk
Gúrka
stk
Gulrætur
stk
Radísur
stk
Avókadó
140 
g
Edamame baunir
msk
Olía (t.d. sesam- eða ólífuolía)
tsk
Maíssterkja
msk
Vatn
tsk
Sesamfræ (hvít og/eða svört)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti