Heilhveiti naanbrauð

vegan
kjotlaust
graenmetis

Létt, loftkennd og trefjarík indversk flatbrauð - henta einstaklega vel með súpum, hummus eða öðrum krydduðum réttum.

Þessi uppskrift er trefjarík og uppfyllir næringarviðmið um trefjar. 

Kornvörur sem innihalda glúten,
Heilhveiti naanbrauð

Aðferð

https://fuldkorn.dk/
  1. Hrærið saman vatni, olíu og salti í skál með skeið eða sleif.

  2. Bætið heilhveiti og hveiti smám saman í skálina og hnoðið deigið jafnóðum með höndum eða notið hrærivél. Hnoðið deigið vel saman í nokkrar mínútur. 

  3. Skiptið deiginu í jafnmarga hluta og fjöldi naanbrauða sem þið ætlið að steikja. Fletið hvern hluta út með kökukefli á borði stráðu með hveiti eða heilhveiti. Mótið úr deiginu hringlaga brauð. Gerið brauðin eins þunn og þið getið.

  4. Hitið pönnu á miðlungshita. Bakið brauðin á þurri pönnu eða steikið þau upp úr örlítilli olíu þar til þau verða gyllt á lit.

Gott er að toppa brauðin með kóríander eða steinselju eða jafnvel pressuðum hvítlauk og smá olíu. 

Prófið að bera naan brauðið fram með súpum eins og m.a. linsubaunasúpu með þorsk eða indverskri linsubaunasúpu

Einnig er gott að hafa í huga að það má prófa sig áfram með hlutföll hveitis og heilhveitis til að byrja mep. Stundum er gott að byrja smátt og fá tilfinninguna fyrir því hvernig heilhveitið kemur út, en það er smá munur á teygjanleika hveitis og heilhveitis og oft eru heilhveitbrauð aðeins þéttari í sér sem er gott að hafa í huga þegar naan brauðið er búið til. 

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

4 skammtar
1.25 
dl
Vatn (kalt)
25 
g
Olía (t.d. repju- eða ólífuolíu)
0.75 
tsk
Salt
130 
g
Heilhveiti
100 
g
Hveiti

Grunnuppskrift miðast við 4 stykki (4 skammta) af hveilhveiti naanbrauði. 

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti