Hafravöfflur með banana
Stökkar og bragðgóðar hafravöfflur án hveitis og eggja.
Þessar vöfflur eru með aðeins óhefðbundnu sniði, þar sem uppistaðan er hafrar, bananar, kókosolía og vatn. Þrátt fyrir það eru þær einstaklega bragðgóðar.
Einfaldast er að baka þær í belgísku vöfflujárni, en einnig má nota hefðbundið vöfflujárn og smyrja það þá létt með olíu.















