Bökubotn
Uppskrift af einföldum og góðum heilkorna bökubotni sem er hægt að setja allsskonar fyllingar í.

Uppskrift af einföldum og góðum heilkorna bökubotni sem er hægt að setja allsskonar fyllingar í.

Hitið ofninn í 200°C , hafið hitann lægri eða 180°C ef notaður er blástur.
Setjið haframjöl í matvinnsluvél og malið þar til það verður að fíngerðu mjöli.
Brjótið eggin og setjið í skál. Bætið eggjum, olíu og hveiti í matvinnsluvélina með haframjölinu og vinnið þar til deig myndast.
Takið deigið úr matvinnsluvélinni hnoðið í bolta og setjið í miðjuna á örk af bökunarpappír.
Fletjið deigið út í hring sem er aðeins stærri en 26 cm bökuform eða annað hringlaga form sem þið eigið.
Þegar deigið er útflatt setjið það í formið. Ýtið fyrst varlega í miðjuna svo það nái niður í botninn, sléttið svo úr því og þrýstið deiginu upp í kantana. Skerið af efst ef eitthvað stendur upp úr.
Stingið göt víðs vegar í botninn með gaffli.
Forbakið botninn í um það bil 10 mínútur. Bætið síðan við fyllingu að eigin vali og bakið áfram þar til hún hefur stífnað.
Bökur eru tilvaldar til að nýta það sem til er í ísskápnum! Notið til dæmis sætar kartöflur, fetaost, spínat, grænkál, rauðrófur, papriku, tómata eða annað sniðugt hráefni sem þið eigið. Hér eru tvær hugmyndir að góðum fyllingum sem hægt er að prófa - annars vegar baka með brúnuðum lauk og hægelduðum tómötum og hins vegar baka með spínati og kúrbít.