Möndlubitar

graenmetis
kjotlaust

Næringarríkir möndlubitar fullir af trefjum. Frábærir sem millimál eða í skál á borðið yfir hátíðarnar.

Þessi uppskrift getur verið góður kostur og hluti af heilsusamlegu mataræði, þrátt fyrir að uppfylla aðeins hluta af opinberum ráðleggingum um mataræði.

Hnetur og afurðir úr þeim,
Möndlubitar

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/
  1. Hitið ofninn í 175°C og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.

  2. Möndlublandan

  3. Byrjið á því að grófsaxa möndlurnar.

  4. Blandið saman í stórri skál möndlum, sólblómafræjum, chiafræjum, kókosmjöli og salti.

  5. Bætið hunangi og repjuolíu saman við möndlublönduna og hrærið öllu vel saman.

  6. Dreifið blöndunni jafnt á bökunarpappírinn og bakið í 10-12 mínútur, eða þar til blandan verður stökk og fær smá gylltan lit. Fylgjast þarf vel með tímanum því hnetur og fræ geta ofeldast mjög hratt. 

  7. Súkkulaðið brætt

  8. Finnið til lítinn pott og skál sem passar vel yfir pottinn, helst yfir brúnina, svo skálin detti ekki ofan í pottinn. 

  9. Setjið um 1-2 dl af köldu vatni í pottinn og náið upp suðu. Setjið skálina yfir og lækkið hitann þegar suðan er komin upp.

  10. Setjið allt dökka súkkulaðið í skálina og bræðið það yfir vatnsbaðinu. Hrærið af og til í með gaffli svo að allt súkkulaðið bráðni. Einnig er hægt að sleppa skrefi 1-2 og nota örbylgjuofn í staðinn.

  11. Samsetning

  12. Látið möndlu-og fræblönduna kóla aðeins. Fjarlægið bökunarpappír varlega og setjið blönduna á skurðbretti eða borð. Dreifið súkkulaðinu jafnt yfir blönduna. 

  13. Setjið möndlublönduna í ísskáp í 10-20 mínútur eða þar til súkkulaðið hefur harnað. Brjótið eða skerið möndlublönduna í hæfilega bita.

Möndlubitarnir geymast í loftþéttu íláti við stofuhita í um 4 daga eða í frysti í um 3-4 vikur.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

20 skammtar
dl
Möndlur
dl
Sólblómafræ
dl
Chiafræ (eða t.d. hörfræ eða husk-trefjar)
dl
Kókosmjöl
0.5 
tsk
Salt
dl
Hunang
msk
Olía (t.d. repjuolía eða bragðlítil ólífuolía)
100 
g
Dökkt súkkulaði (60% eða hærra)

Grunnuppskrift miðast við 20 stykki.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti