Baka með spínati og kúrbít
Þessi baka er full af grænmeti, góð bæði í hádeginu og á kvöldin. Fullkomin máltíð með fersku salati.

Þessi baka er full af grænmeti, góð bæði í hádeginu og á kvöldin. Fullkomin máltíð með fersku salati.

Hitið ofninn í 200˚C.
Setjið jógúrt, olíu (2 msk fyrir eina uppskrift, sem er skammtur fyrir fjóra), rúgmjöl, hveiti og salt í skál eða á borð. Blandið vel saman og hnoðið með höndunum þar til deigið loðir vel saman.
Fletjið deigið út með kökukefli eða höndum á milli tveggja laga af bökunarpappír, þar til það passar í bökuform (um 25 cm að breidd). Smyrjið formið með smá olíu og dreifið deiginu jafnt í formið.
Stingið nokkur göt í deigið með gaffli. Bakið botninn í ofni án fyllingar í um 10 mínútur eða þar til hann er orðinn þurr en ekki farinn að taka lit.
Takið utan af og skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar. Steikið laukinn á pönnu með afganginum af olíunni við vægan hita. Laukurinn á að mýkjast hægt og karmelliserast en ekki brúnast eða steikjast of mikið.
Skolið og skerið kúrbítinn í litla teninga og skolið spínatblöðin.
Steikið kúrbítinn í um 5 mínútur á pönnu með lauknum. Bætið spínatinu út í í lokin og steikið áfram í 1–2 mínútur eða þar til spínatið er rétt byrjað að mýkjast.
Brjótið egg í skál og bætið kotasælu og mjólk við. Kryddið með smá salti og pipar.
Dreifið fyrst lauknum, kúrbítnum og spínatinu jafnt yfir bökudeigið. Hellið síðan kotasælu- og eggjablöndunni yfir grænmetið.
Bakið bökuna í ofni þar til eggjamassinn er orðinn stífur eða í um 35 mínútur.
Léttristið furuhnetur á pönnu og stráið yfir bökuna áður en hún er borin fram.
Bakan er ljúffeng með kúrbít, rauðlauk og spínati en hægt er að aðlaga innihaldið eftir því hvaða hráefni eru tiltæk eða til í grænmetisskúffunni. Einnig má krydda hana eftir smekk.
Gott er að bera bökunna fram með fersku salati.