Grænt salat með granateplum og osti

graenmetis
kjotlaust

Ljúfengt og mettandi salat sem hentar bæði vel með grilluðum mat og á hlaðborð á hátíðisdögum.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Grænt salat með granateplum og osti

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/
  1. Sjóðið byggið í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Þegar það er fulleldað, skolið það þá með köldu vatni, látið allt vatn renna vel af. Leggið byggið til hliðar og leyfið að kólna.

  2. Setjið soðna byggið í djúpa skál og blandið saman við ólífuolíuna.

  3. Afhýðið rauðlauk og saxið smátt. Skolið, myntu og streinselju og saxið smátt.

  4. Bætið rauðlauk, myntu og steinselju út í byggið.

  5. Skolið sítrónuna og þerrið. Rífið börkinn með rifjárni og kreistið safann úr henni. Setjið börkinn og safann saman við byggblönduna. Gott er að byrja á að setja fyrst minni safa en meiri og fikra sig síðan áfram þar til ákjósanlegu bragði hefur verið náð. 

  6. Myljið fetaost og blandið honum varlega saman við byggblönduna.

  7. Skerið granatepli í tvennt, takið fræin úr og setjið þau í skál. Passið að allt hvítt sé tekið burt þar sem það er mjög biturt á bragðið. Skolið vínber og skerið í helminga.

  8. Hrærið granateplafræjum og vínberjum út í. Kryddið til með salti og nýmöluðum pipar.

Skreytið með myntulaufum eða þeim kryddjurtum sem mögulega eru til fyrir og berið salatið fram, hvort heldur sem meðlæti eða eitt og sér. Bjóðið einnig upp á smá auka ólífuolíu til að dreypa yfir réttinn.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

2 skammtar
65 
g
Bygg (eða annað gróft korn)
tsk
Olía (ólífuolía)
50 
g
Rauðlaukur
10 
g
Mynta (fersk)
20 
g
Steinselja (fersk)
0.5 
stk
Sítróna (börkur og safi)
50 
g
Fetaostur (kubbur)
0.5 
stk
Granatepli
85 
g
Vínber
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar (mulinn)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti