Sloppy Joe hamborgari

graenmetis
kjotlaust

Prófið þessa safaríku Sloppy Joe-útgáfu af hamborgara – ómótstæðileg blanda af linsum, fersku salati og sýrðum rjóma.

Mynd: Hanna Hurtta

Kornvörur sem innihalda glúten,
Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Brennisteinsdíoxíð og súlfít,
Sloppy Joe hamborgari

Aðferð

https://www.sydanmerkki.fi/reseptit

    Hvítkálsalat

  1. Hreinsið hvítkálið og skerið í eins þunna strimla og þið getið. Setjið í skál.

  2. Kreistið safa úr sítrónu og hellið yfir hvítkálsstrimlana. Nuddið sítrónusafanum vel í kálið.

  3. Skolið dillið og saxið smátt. Bætið dillinu út í skálina með hvítkálinu. 

  4. Hrærið saman í skál sýrðum rjóma, olíu (notið um helming af olíunni hér), salti (notið helminginn af saltinu hér) og hvítum pipar og búið þannig til sósu. Hellið sósunni yfir kálið.

  5. Setjið salatið í ísskáp og látið það taka sig í að minnsta kosti 15 mínútur áður en það er borið fram.

  6. Sýrður rauðlaukur

  7. Flysjið rauðlaukinn, skerið hann fyrst í tvennt og síðan í mjög þunnar sneiðar.

  8. Setjið laukinn í pott ásamt hvítvínsediki og sykri (notið helminginn af sykrinum hér). Hitið upp að suðu og látið malla í nokkrar mínútur, hrærið á meðan. Takið pottinn af hellunni, setjið lok eða plastfilmu yfir og látið kólna. Rauðlaukurinn er tilbúinn þegar hann hefur kólnað.

  9. Linsubaunablanda

  10. Flysjið lauk og hvítlauk og saxið smátt. 

  11. Hitið olíu (hinn helminginn) á pönnu og mýkið laukinn við meðalhita í nokkrar mínútur. Bætið hvítlauk, reyktu paprikudufti, broddkúmeni og chillídufti út í og steikið áfram í 1–2 mínútur.

  12. Bætið hökkuðum tómötum út í. Skolið linsurnar í sigri undir köldu vatni, látið renna af þeim og setjið á pönnuna. Bætið sojasósu og afganginum af sykrinum út í. Látið malla við vægan hita í um 15 mínútur.

  13. Bragðbætið með smá salti og nýmöluðum svörtum pipar.

  14. Samsetning

  15. Skerið brauðin í tvennt og ristið þau á heitri, þurri pönnu.

  16. Fyllið brauðin með rausnarlegu magni af heitri linsubaunablöndu, hvítkálsalati og sýrðum rauðlauk og berið fram.

Tilvalið er að nota það grænmeti sem til er í skápnum heima - svo sem tómata, gúrku, rauðkál, salat eða avókadó til að gera Sloppy Joe-hamborgarann enn betri. 

Næringargildi
Finnish Heart Symbol

Innihald

2 skammtar
150 
g
Hvítkál
1.5 
msk
Sítrónusafi
msk
Dill (ferskt, má nota þurrt en þá minna)
50 
g
Sýrður rjómi (má nota vegan rjóma)
tsk
Olía
0.25 
tsk
Salt
0.1 
tsk
Hvítur pipar (malaður, eða eftir smekk)
0.5 
stk
Rauðlaukur
0.5 
msk
Hvítvínsedik
msk
Sykur
0.5 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
0.5 
tsk
Reykt paprika (duft)
0.5 
tsk
Broddkúmen (duft)
0.25 
tsk
Chillíduft
250 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós eða passata)
45 
g
Linsubaunir (þurrar)
0.5 
msk
Sojasósa
0.25 
tsk
Pipar (eða eftir smekk)
stk
Hamborgarabrauð (gróft t.d. Lífskorn)

1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti