Súkkulaðimús með avókadó

graenmetis
kjotlaust

Þessi er silkimjúk og ljúffeng og hentar vel sem eftirréttur yfir hátíðarnar.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Súkkulaðimús með avókadó

Aðferð

    Súkkulaði brætt

  1. Finnið til lítinn pott og skál sem passar vel yfir pottinn og helst yfir brúninni en dettur ekki ofan í pottinn. 

  2. Setjið um 1-2 dl af köldu vatni í pottinn og náið upp suðu. Setjið skálina yfir og lækkið hitann þegar suðan er komin upp.

  3. Setjið allt dökka súkkulaðið í skálina og bræðið það alveg yfir vatnsbaðinu. Hrærið af og til í með gaffli svo að allt súkkulaðið bráðni. Einnig er hægt að sleppa skrefi 1-2 og nota örbylgjuofn í staðinn.

  4. Þegar súkkulaðið er bráðið, setjið það til hliðar og látið kólna lítillega. 

  5. Súkkulaðimúsin

  6. Skerið avókadó í tvennt og fjarlægið steininn varlega með skeið eða hníf. Skafið avókadóið úr hýðinu. Sjá nánar um meðhöndlun á avókadó.

  7. Setjið avókadóið í matvinnsluvél ásamt kakódufti, mjólk (að eigin vali), vanillu og salti og maukið fyrst vel saman.

  8. Hellið bræddu súkkulaðinu út í og maukið þar til blandan verður alveg slétt og kremuð. Gott er að stoppa nokkrum sinnum og nota skeið eða sleif til að skafa niður kantana og blanda öllu vel saman.

  9. Fyrir sætari útgáfu bætið við smá hlynsírópi, döðlu eða hunangi. Kælið músina þangað til hún er borin fram. Músin harðnar og þéttist í kæli og á að vera nokkuð létt þegar hún fer í glösin - hægt að bæta aðeins við mjólk eða sætu þar til rétt áferð næst.

  10. Setjið súkkulaðimúsina í falleg glös eða skálar og berðu fram.

    Step 9

Hægt er að skreyta súkkulaðimúsina með hafrarjóma, kókosrjóma eða venjulegum rjóma, söxuðum hnetum, myntu og/eða ferskum eða frosnum berjum eða berjamauki.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
80 
g
Dökkt súkkulaði
stk
Avókadó
1.5 
msk
Kakó
msk
Mjólk (að eigin vali, t.d. haframjólk eða léttmjólk)
0.5 
tsk
Vanilla
0.1 
tsk
Salt (má vera meira - eftir smekk)
tsk
Hlynsíróp (eða önnur sæta, t.d. ferskar döðlur eða hunang)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti