Graskerssúpa
Graskerssúpa sem hentar sérstaklega vel á köldum dögum, borin fram með ljúffengum brauðteningum úr afgangs rúgbrauði.

Graskerssúpa sem hentar sérstaklega vel á köldum dögum, borin fram með ljúffengum brauðteningum úr afgangs rúgbrauði.

Skrælið og fræhreinsið graskerið og skerið í teninga. Takið utan af lauk, hvítlauk og engifer og skolið chillí. Saxið lauk, hvítlauk og chillí smátt og rífið engifer með rifjárni.
Hitið olíu (ríflega helming af olíunni) í stórum potti og steikið lauk, hvítlauk, chillí, engifer og broddkúmen þar til það verður ilmandi.
Bætið graskeri, grænmetiskrafti og vatni út í pottinn. Látið sjóða í um það bil 20 mínútur eða þar til graskerið er meyrt.
Notið töfrasprota eða matvinnsluvél til að mauka innihaldið þar til allt hefur blandast vel saman. Smakkið til með örlitlu salti, pipar, broddkúmeni eða öðrum kryddum.
Skerið rúgbrauðið í litla teninga og veltið upp úr restinni af olíunni og smá salti.
Ristið brauðteningana á pönnu eða í ofni við 180°C í um 10 mínútur. Leyfið teningunum síðan að kólna alveg.
Blandið ristuðu teningunum saman við kókosflögurnar.
Skolið og saxið kóríander niður og skerið límónu í báta.
Toppið súpuna með blöndu af rúgbrauðsteningum og kókosflögum, fersku kóríander, smá límónusafa og lítilli skeið af hreinu skyri.