Vefjur með kryddaðri baunafyllingu

vegan
graenmetis
kjotlaust

Ljúffengar heilkornavefjur með bragðmikilli baunafyllingu – fullkomnar í hádegis- eða kvöldmat. Frábærar fyrir grænmetisunnendur og þá sem vilja meiri næringu og trefjar.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Vefjur með kryddaðri baunafyllingu

Aðferð

https://fuldkorn.dk/
  1. Hellið vökvanum af baununum og skolið þær vel með köldu vatni, í sigti eða beint í dósinni. Þerrið þær létt með pappírsþurrku eða hreinu viskustykki.

  2. Fjarlægið hýðið af hvítlauknum og saxið hann smátt eða pressið. Kreistið safann úr sítrónunni í litla skál.

  3. Setjið baunirnar í skál ásamt hvítlauk, sítrónusafa, salti, broddkúmeni, paprikukryddi, vatni og olíu. Blandið vel saman og smakkið til með kryddum, sítrónusafa og hvítlauk.

  4. Skolið gúrku, gulrætur, papriku og kínakál og skerið í þunnar ræmur. Skolið spínatið. Saxið sólþurrkuðu tómatana niður.

  5. Hitið vefjurnar örstutt á heitri pönnu (sjá einnig vefjuuppskrift hér). Baunafyllinguna má einnig velgja í potti en það er í góðu lagi að nota hana kalda.

  6. Setjið fyrst baunafyllingu á vefjuna, dreifið síðan grænmeti yfir og endið á fínsöxuðum sólþurrkuðum tómötum. Rúllið vefjunni upp og berið fram.

Gott er að nota það grænmeti sem til er á heimilinu í vefjuna eða skera auka grænmeti og hafa á sér disk til að narta í, sérstaklega ef það eru börn á heimilinu. Einnig er hægt að rífa niður smá ost eins og parmesan og bera fram með vefjunum og salsasósa passar sömuleiðis fullkomlega við réttinn. Baunafyllingin er einnig dásamleg sem álegg í heilkornasamlokur.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
400 
g
Svartar baunir (eða nýrnabaunir - úr dós, án vökva)
0.5 
rif
Hvítlaukur (eða eftir smekk)
0.25 
stk
Sítróna (safinn)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Broddkúmen (cumin)
0.5 
tsk
Paprikuduft
25 
ml
Vatn
0.5 
msk
Olía (t.d. repju- eða ólífuolía)
0.25 
stk
Gúrka
stk
Gulrætur
0.5 
stk
Paprika
0.5 
stk
Kínakál (eða hvítkál eða rauðkál)
30 
g
Spínat (ferskt eða frosið)
0.5 
dl
Sólþurrkaðir tómatar
stk
Vefjur (t.d. heilhveiti)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti