Tómat- og avókadósalat

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einfalt og ferskt salat með tómötum og lárperu, létt kryddað með sítrónu. Hentar vel sem meðlæti eða létt máltíð.

Tómat- og avókadósalat

Aðferð

    Salat

  1. Skolið tómata og skerið í báta. Skolið papriku og saxið smátt. Sneiðið vorlauk í þunnar sneiðar og skolið klettasalat.

  2. Veljið þroskað avókadó, mjúkt viðkomu en stinnt. Skerið í tvennt, takið steininn úr og fjarlægið hýðið, t.d. með stórri skeið. Skerið í munnbita. Sjá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó.

  3. Blandið öllu skorna grænmetinu saman í skál ásamt rúsínunum.

  4. Dressing

  5. Kreistið sítrónu og setjið safann í skál eða krukku. Bætið við ólífuolíu, hlynsírópi, pipar og salti. Hristið eða hrærið vel saman.

  6. Rétt áður en salatið er borið fram hellið dressingunni yfir salatið og blandið vel saman. Einnig hægt að bera dressinguna fram til hliðar. 

Gott er að bæta stökkum graskersfræum, ferskum kryddjurtum og smá fetaosti út í salatið til að auka bragð og áferð. Berið salatið fram með grófu brauði eða sem meðlæti t.d. með steiktum kjúklingi eða fiski.

Avókadó er gott að geyma í ísskáp um leið og þau eru orðin aðeins mjúk, þannig endast þau aðeins lengur. 

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
250 
g
Tómatar
0.25 
stk
Paprika
0.5 
stk
Vorlaukur
50 
g
Klettasalat
0.5 
stk
Avókadó
msk
Rúsínur (valkvætt)
msk
Olía (t.d. kaldpressuð ólífuolía)
0.25 
stk
Sítróna (safinn)
0.5 
tsk
Hlynsíróp (má vera hunang eða sleppa)
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Salt
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti