Tælensk tómatsúpa

kjotlaust
graenmetis
vegan

Einstaklega frískleg og fersk súpa sem kemur á óvart.

Krabbadýr og afurðir úr þeim,
Tælensk tómatsúpa

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Afhýðið lauk og engifer, skolið gulrót og papriku vel. Saxið lauk og engifer smátt og skerið gulrót og papriku í litla bita.

  2. Hitið olíu á dúpri pönnu eða potti við meðalhita. Steikið lauk, gulrætur og papriku í 3 mínútur. Bætið engifer og karrípaste út á og steikið áfram í 30 sekúndur.

  3. Setjið tómata, kókosmjólk, sítrónugras og vatn út á pönnuna og látið malla með loki í um 20 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.

  4. Fjarlægið sítrónugrasið af pönnunni ef þið notuðuð það, annars kreistið sítrónu eða límónu út í súpuna.

  5. Takið af hellunni og maukið súpuna þar til hún verður silkimjúk. Notið töfrasprota eða hellið súpunni í matvinnsluvél og maukið þar. Ef töfrasproti er notaður er hægt að setja hann beint í pottinn en farið varlega ef súpan er heit.

  6. Setjið súpuna aftur á hitann og bætið meira vatni ef þarf til að þynna súpuna. Hitið vel og leyfið að malla smá. 

Gott er að smakka súpuna og bæta við kryddi ef þarf.

Berið hana fram með heilkorna brauði og ferskum kryddjurtum ef þið eigið.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Laukur
0.5 
msk
Engifer (ferskt er betra)
stk
Gulrætur
0.5 
stk
Paprika
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
msk
Karrípaste (eða uppáhalds karríkryddblandan)
200 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós eða passata)
200 
ml
Kókosmjólk (í dós)
0.5 
stk
Sítrónugras (ferskur, má nota safa úr sítrónu eða límónu)
500 
ml
Vatn
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti