Sýrður rauðlaukur
vegan
graenmetis
kjotlaust
Sýður rauðlaukur passar einstaklega vel á hamborgara, í vefjur og ofan á salöt. Reyndar er hann ljúffengur með nær hvaða rétti sem er.
Brennisteinsdíoxíð og súlfít,

Sýður rauðlaukur passar einstaklega vel á hamborgara, í vefjur og ofan á salöt. Reyndar er hann ljúffengur með nær hvaða rétti sem er.

Takið utan af rauðlauknum, skerið hann í þunnar lengjur eða hringi og setjið í krukku.
Setið rauðvínsedik, vatn, salt, piparkorn og sykur í pott og hitið við meðalhita þar til sykurinn er alveg uppleystur.
Hellið vökvanum yfir laukinn og látið kólna í kæli.
Óhætt er að leika sér með að krydda blönduna til t.d. með bleikum eða blönduðum piparkornum eða lárviðarlaufum. Laukurinn þarf að sýrast í allavega 15 mínútur. Laukurinn geymist vel í kæli í allt að tvær vikur.