Steiktar núðlur með grænmeti
Ferskur og mildur réttur – frábær leið til að bæta trefjum og grænmeti í mataræðið.

Ferskur og mildur réttur – frábær leið til að bæta trefjum og grænmeti í mataræðið.

Afhýðið lauk og skerið í þunnar sneiðar.
Skolið papriku og skerið hana fyrst langsum. Fjarlægið fræin og skerið síðan í grófa bita.
Skolið og skerið brokkolí í litla bita. Skerið hvítkál í mjóa strimla.
Skrælið engifer og rífið það smátt með rifjárni. Skolið baunaspírur undir köldu rennandi vatni.
Hitið wok pönnu eða djúpa stóra pönnu þangað til hún er orðin mjög heit.
Setjið olíu á heita pönnuna. Snöggsteikið laukinn, paprikuna, hvítkálið, engiferið og baunaspíruarnar í nokkrar mínútur. Notið vatn ef þarf meiri vökva á pönnuna.
Sjóðið núðlurnar í potti samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, látið renna vel af þeim og blandið þeim saman við grænmetið. Hitið í nokkrar mínútur á pönnunni.
Hrærið saman í skál maísmjöli, eplasafa og tamarisósu. Hellið út á pönnuna og hrærið í á meðan sósan þykknar.
Takið af hitanum og bætið sesamolíunni saman við.
Í réttinn má nota alls kyns grænmeti í stað þess sem talið er upp, eins og maískorn, kúrbít, grænar ertur, snjóbaunir, gulrætur, edamame, gúrkur eða sveppi. Gott er að bæta við próteini eins og svörtum baunum, linsubaunum, tofu og kjúklingi. Einnig má léttsteikja egg eða eggjahvítur í lokin við miðlungsháan hita.
Notið þær núðlur sem til eru, t.d. hrísgrjóna-, bókhveiti- eða eggjanúðlur en gott er að velja heilkorna, trefjaríkar tegundir.
Ef það er afgangur af réttinum hentar hann líka einstaklega vel sem nesti daginn eftir.