Spaghettí Bolognese með rótargrænmeti
Hinn klassíski Bolognese réttur sem við þekkjum öll og elskum. Hér er hann í nýjum búningi með auka skammti af grænmeti sem gerir hann bara enn betri - og auðvitað með heilhveiti spaghettíi.

Hinn klassíski Bolognese réttur sem við þekkjum öll og elskum. Hér er hann í nýjum búningi með auka skammti af grænmeti sem gerir hann bara enn betri - og auðvitað með heilhveiti spaghettíi.

Hitið ofninn í 170°C.
Flysjið nípurnar og skerið í þunnar lengjur.
Penslið nípulengjurnar með 1/2 af olíunni og kryddið með 1/2 af saltinu og piparnum.
Setjið nípurnar í ofnskúffu eða eldfast mót og bakið í ofninum þar til þær eru meyrar og gullinbrúnar. Það er gott að gera þetta á meðan sósan mallar.
Takið utan af lauknum. Skolið sellerí og gulrætur. Skerið lauk, sellerí og gulrætur í litla bita.
Hitið smá ólífuolíu (tæplega helminginn) í þykkbotna potti við meðalháan hita. Steikið laukinn þar til hann verður mjúkur, án þess að brúnast.
Bætið selleríi og gulrótum á pönnuna. Hækkið örlítið hitann og steikið grænmetið í 2–3 mínútur, meðan þið hrærið stöðugt. Grænmetið á að vera heitt í gegn en ekki farið að brúnast. Þið getið líka snöggsoðið gulræturnar og selleríið í litlum potti í 5–10 mínútur og bætt við kjötsósuna í lokin.
Setjið grænmetið á disk og geymið til hliðar á meðan kjötið er steikt.
Steikið hakkið í smáum skömmtum í pottinum. Þegar kjötið hefur brúnast og eldast í gegn blandið þá grænmetinu saman við.
Gerið holu í miðjuna á pottinum og setjið restina af ólífuolíunni þar.
Setjið tómatpúrruna í miðjuna á pottinum og steikið í olíunni í um 1 mínútu á meðan hrært er. Þetta dregur úr beiskleika tómatpúrrunnar.
Hellið síðan tómötum og köldu vatni út í blönduna í pottinum.
Takið utan af hvítlauknum og saxið smátt. Bætið honum út í pottinn ásamt lárviðarlaufum, chillí, timían og restinni af salti og pipar. Látið malla í um 20 mínútur. Ef þið viljið mildari rétt, minnkið magnið af chillí eða sleppið því alveg.
Gott er að leyfa kjötsósunni að malla allavega í 30 mínútur upp í nokkrar klukkustundir á lágum hita því það gerir bragðið dýpra og betra. Ef ekki gefst tími til þess er rétturinn tilbúinn eftir um 20 mínútur.
Toppið kjötsósuna með þurrkuðu eða fersku oreganói rétt áður en hún er borinn fram.
Sjóðið heilhveitispaghettíið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum og berið fram ásamt kjötsósunni og ofnbökuðum nípum. Sjá nánar um suðu á pasta.
Gott er að bera réttinn fram með smá saxaðri steinselju eða rifnum parmesanosti, ef þið eigið.
Hægt er að nota ferskar eða þurrkaðar kryddjurtir í réttinn - ef notaðar eru þurrkaðar þá þarf alltaf minna af þeim en ferskum.