Salsa verde með steinselju og kapers

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einföld útgáfa af ítalskri salsa verde sem gefur ferskleika og lit á diskinn. Tilvalin með grilluðum réttum og bökuðu grænmeti.

Ítölsk salsa verde með steinselju og kapers

Aðferð

  1. Skolið steinseljuna vel og hristið mesta vatnið af.

  2. Afhýðið hvítlauksrifið. Skerið sítrónu í tvennt og kreistið safann í skál.

  3. Setjið steinselju, hvítlauk, sítrónusafa, kapers og olíu í lítinn hakkara eða blandara. Einnig má setja innihaldsefnin í skál og nota töfrasprota. Maukið þar til sósan hefur blandast vel saman. Hún má vera örlítið gróf.

  4. Smakkið til með salti og pipar ef þarf.

  5. Berið fram strax eða geymið í kæli þar til sósan er borin fram.

Prófið að nota kóríander, dill eða myntu í stað hluta af steinseljunni. Kapers má skipta út fyrir grænar ólífur. Fyrir þá sem vilja meira bragð getur verið gott að bæta við ansjósum, skalottlauk eða rifnum sítrónuberki. 

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
25 
g
Steinselja (fersk, ef þurrkað þá nota minna)
rif
Hvítlaukur
msk
Kapers (má nota grænar ólífur)
1.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
stk
Sítróna (safinn)
0.25 
tsk
Pipar (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti