Salat með steiktu tofu, avókadó og berjum
Litríkt og ferskt salat með steiktu tofu sem gefur góða áferð og prótein. Mild og góð dressing með léttu sætu bragði bindur réttinn saman.

Litríkt og ferskt salat með steiktu tofu sem gefur góða áferð og prótein. Mild og góð dressing með léttu sætu bragði bindur réttinn saman.

Setjið hunang, balsamikedik og olíu í skál og hrærið saman, t.d. með skeið. Haldið eftir smá olíu til steikingar á tofui.
Skolið salat og bláber og látið vatn renna vel af.
Takið hýðið utan af avókadó, fjarlægið stein og skerið í sneiðar. Sjá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó.
Afhýðið rauðlauk og skerið í þunnar sneiðar.
Skerið tofu í litla teninga.
Hitið restina af olíunni á pönnu við meðalháan hita. Setjið tofu á pönnuna og steikið þar til það fær léttbrúnan lit.
Hellið sojasósu yfir tofuið og hrærið. Stráið graskersfræjum yfir og látið hitna í stutta stund.
Setjið salat, avókadó, rauðlauk og bláber á bakka eða í skál og bætið tofu ofan á.
Hellið dressingunni yfir salatið og kryddið með nýmöluðum pipar.
Hægt er nota aðra ávexti í stað bláberja, til dæmis vínber, granateplakjarna, epli eða perur. Salatið er best ferskt en má geyma í ísskáp í nokkrar klukkustundir án dressingar.