Roti - flatbrauð

vegan
graenmetis
kjotlaust

Mjúkt og trefjaríkt indverskt flatbrauð sem passar vel með súpum, salötum og sem meðlæti með ýmsum réttum.

Undirbúningurinn felst að mestu í biðtíma.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Roti - flatbrauð

Aðferð

  1. Setjið heilhveiti, hveiti og salt í stóra skál og blandið vel saman með skeið eða sleif.

  2. Hrærið rólega, annaðhvort með höndunum eða í hrærivél, og bætið vatninu smám saman út í.

  3. Hnoðið þar til deigið er mjúkt og teygjanlegt, í um 10-15 mínútur (má vera lengur). 

  4. Leyfið deiginu að taka sig í kæli í um 20-30 mínútur ef tími gefst til. Það hjálpar varðandi áferð og meðhöndlun en er ekki nauðsynlegt. 

  5. Skiptið deiginu í passlega marga búta og fletjið hvern bút út með kökukefli í hringlaga brauð á hveitistráðu borði.

  6. Finnið til pönnu sem hentar t.d. pönnukökupönnu. Stillið helluna á meðalháan hita. Bakið brauðin á heitri og þurri pönnunni í um 1-2 mínútur á hvorri hlið. 

  7. Leggið steiktu brauðin á flatan disk eða bakka og breiðið hreint viskastykki yfir á meðan restin er bökuð.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
175 
g
Heilhveiti
175 
g
Hveiti
0.5 
tsk
Salt
dl
Vatn
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti