Póstfiskur
Fljótleg, bragðgóð og næringarrík fiskimáltíð með grænmeti og osti – fullkomin bæði hversdags og um helgar.

Fljótleg, bragðgóð og næringarrík fiskimáltíð með grænmeti og osti – fullkomin bæði hversdags og um helgar.

Finnið til pott og sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum, oft í um 10-30 mínútur. Sjá nánari eldunarleiðbeiningar á hrísgrjónum hér.
Hitið ofninn í 180°C.
Skerið fiskinn í passlega bita fyrir hvern og einn (ef eldað er fyrir tvo þá í tvo bita).
Skolið tómata og papriku og skerið í þunnar sneiðar. Skolið basilíkuna og rífið laufin af stilkunum. Skerið mozzarellaostinn í sneiðar.
Setjið fiskinn í eldfast mót og búið til eins konar bréfvasa úr bökunarpappír fyrir hvert stykki. Raðið mozzarellaosti, tómötum, papriku og basilíkulaufum lagskipt ofan á fiskinn.
Saltið fiskinn og piprið og hellið olíu yfir í lokin.
Bakið fiskinn í ofni í um 12 til 15 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn og osturinn bráðnaður.
Berið fiskinn fram með hýðishrísgrjónum og fersku niðurskornu grænmeti eða góðu salati. Gott er að kreysta smá sítrónu yfir fiskinn til að fríska upp bragðið.