Steinbítur með kasjúhnetum, hvítlauk, apríkósum og bræddum osti
Steinbítur með kasjúhnetum, apríkósum, hvítlauk og bræddum osti er dásamleg blanda af mildum fiski og ríkulegu bragði.

Steinbítur með kasjúhnetum, apríkósum, hvítlauk og bræddum osti er dásamleg blanda af mildum fiski og ríkulegu bragði.

Hitið ofninn í 190°C.
Ef tími leyfir er gott að leggja apríkósurnar í bleyti í vatni í um 30 mínúturm þá verða þær mýkri og safaríkari. Það er líka allt í lagi að sleppa þeim úr uppskriftinni.
Saxið apríkósur, kasjúhnetur og steinselju í hæfilega smáa bita – munið að skola steinseljuna fyrst. Takið utan af hvítlauknum og pressið hann. Rífið ostinn með rifjárni.
Hrærið saman í skál apríkósum, kasjúhnetum, steinselju, hvítlauk, osti og kryddblöndu. Setjið blönduna yfir fiskinn þegar hann er kominn í eldfast mót.

Skolið sítrónur og skerið í sneiðar og raðið í botninn á eldföstu móti.
Skerið steinbítinn í hæfilega bita og leggið ofan á sítrónusneiðarnar.
Kryddið fiskinn með salti og pipar og dreypið örlítið af olíu yfir (ef vill). Dreifið apríkósublöndunni með ostinum jafnt yfir.
Bakið fiskinn í ofni í um 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur og fiskurinn fulleldaður.
Gott er að bera réttinn fram með fersku salati, soðnu byggi eða ofnbökuðum sætum kartöflum með smá parmesan- eða fetaosti.