Þorskhnakkar með steinselju- og myntupestói á grænmetisbeði

kjotlaust
fiskur

Ljúffengur fiskréttur, stútfullur af grænmeti, trefjum og næringu. 

Fiskur og fiskafurðir,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Þorskhnakkar með steinselju- og myntupestói á grænmetisbeði

Aðferð

https://www.jana.is/

    Steinselju- og myntupestó

  1. Skolið steinselju og myntu og hristið vatnið af. Takið utan af hvítlauknum. Kreistið safann úr límónunni og setjið til hliðar. Takið til matvinnsluvél eða lítinn hakkara.

  2. Setjið steinselju, myntu, hvítlauk, límónusafa, kasjúhnetur, döðlur, engifer, smá salt, og olíu í matvinnsluvélina og blandið saman. Byrjið á að nota lítið magn af olíu og bætið meira við smám saman ef þarf – einnig má bæta við örlitlu vatni til að ná réttri áferð en blandan má vera svolítið gróf. Geymið smá olíu til að dreypa yfir fiskinn. 

  3. Þorskhnakkar og grænmeti

  4. Hitið ofninn í 180°C.

  5. Skolið gulrætur, tómata, papriku, kúrbít og púrrulauk og skerið í minni bita.

  6. Skerið þorskinn í hæfilega bita og setjið í eldfast mót ásamt gulrótum, tómötum, papriku, kúrbít og púrrulauk. 

  7. Dreypið smá olíu yfir fiskinn og setjið væna matskeið af pestóinu á hvern fiskbita. Kryddið með salti og pipar eða sítrónupipar ef þið viljið. Stráið yfir kryddblöndu að eigin vali t.d. marokkóska kryddblöndu eða fiskikrydd. 

  8. Setjið fiskinn og grænmetið inn í ofninn og bakið í 20 til 30 mínútur. Eldunartími fer eftir því hversu þykkur fiskurinn er og stærð grænmetisbitanna.

Í þessa uppskrift er upplagt að nota grænmeti úr ísskápnum og þær kryddjurtir sem til eru á heimilinu. Einnig má nota meira af kúrbítnum og paprikunni, en miðað er við í uppskriftinni, svo ekkert af grænmetinu fari til spillis. 

Til að spara tíma má að sjálfsögðu nota tilbúið pestó.

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
búnt
Steinselja
0.5 
búnt
Mynta
stk
Hvítlaukur
0.5 
stk
Límóna (safinn)
msk
Kasjúhnetur
stk
Döðlur
g
Engifer (ferskt, eða eftir smekk)
0.25 
tsk
Salt
1.2 
dl
Olía (t.d. kaldpressuð ólífuolía)
stk
Gulrætur
stk
Tómatar
0.5 
stk
Paprika
0.25 
stk
Kúrbítur
0.25 
stk
Púrrulaukur
400 
g
Þorskur (roð- og beinlaus)
0.25 
tsk
Pipar (t.d. sítrónupipar)
tsk
Kryddblanda (að eigin vali)

Olían er notuð á tveimur stöðum; bæði fyrir pestóið (frá 100-140 ml miðað við pestó 2 skammta) og eftir smekk yfir fiskinn.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti