Grafinn lax með appelsínu og rósapipar

fiskur
kjotlaust

Appelsínur og rósapipar gefa graflaxinum frísklegt og hátíðlegt bragð. Þessi réttur er falleg og ljúffeng viðbót á hátíðarborðið.

Best og öruggast er að frysta laxinn fyrst í tvo sólarhringa og láta hann svo þiðna áður en hann er grafinn. Eftir það er uppskriftin einföld og fljótleg.

Fiskur og fiskafurðir,
Grafinn lax með appelsínu og rósapipar

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/

    Undirbúningur

  1. Fjarlægið öll bein úr laxinum með lítilli töng eða plokkara.

  2. Frystið ferskt laxaflök í tvo sólahringa. Þýðið laxinn síðan rólega í ísskáp í 8–12 klukkustundir.

  3. Kryddblanda

  4. Setjið salt og sykur saman í skál.

  5. Skolið appelsínuna vel undir köldu vatni og þurrkið létt. Raspið börkinn af appelsínunni með rifjárni. Bætið berkinum út í salt-sykurblönduna ásamt rósapiparnum. Myljið blönduna létt með fingrunum svo piparinn brotni aðeins.

  6. Grafinn lax

  7. Setjið kryddblönduna ofan á laxin og nuddið létt yfir allt. Laxinn þarf að vera alveg þiðinn.

  8. Skerið flakið þvert, í tvo bita. Leggið bitana saman, kjötmegin á móti hvorum öðrum, þykkur hluti á að liggja á móti þunnum.

  9. Setjið laxinn í plastpoka og látið hann taka sig í tvo sólarhringa í kæli. Snúið pokanum öðru hvoru.

  10. Þegar laxinn er tilbúinn hellið vökvanum frá og þerrið hann kjötmegin með eldhúspappír.

  11. Skerið laxinn í þunnar sneiðar með beittum hníf, hafið sneiðarnar skáhallandi.

  12. Setjið laxinn á disk og skreytið með appelsínusneiðum og bleikum pipar.

Berið laxinn fram með grófu heilkorna brauði eða rúgbrauði ásamt soðnum eggjum og fersku niðursneiddu grænmeti, jafnvel því grænmeti sem til er í ísskápnum.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

2 skammtar
200 
g
Lax (eða bleikja)
msk
Salt
msk
Sykur
0.5 
stk
Appelsínur (börkurinn og safinn)
30 
stk
Piparkorn (t.d. rósapipar)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti