Fiskgratín
Einn af þessum klassísku fiskréttum sem alltaf slær í gegn.

Einn af þessum klassísku fiskréttum sem alltaf slær í gegn.

Hitið ofninn í 200°C.
Finnið til pott og sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum, oft í um 10-30 mínútur. Sjá nánari eldurnarleiðbeiningar á hrísgrjónum.
Skolið, fræhreinsið og skerið papriku í tenginga.
Hitið rúmlega helminginn af olíunni á pönnu með helmingnum af karríinu. Bætið papriku á pönnuna og mýkið við vægan hita í nokkrar mínútur.
Setjið súrmjólk, majónes og restina af karríkryddinu í skál og hrærið saman.
Smyrjið eldfast mót með restinni af olíunni, gott er að gera það með eldhúsbréfi. Dreifið soðnum hrísgrjónum í botninn.
Skerið roð- og beinhreinsaðan fisk í hæfilega bita og leggið ofan á hrísgrjónin. Dreifið papriku og aspas yfir og hellið karrísósunni yfir. Kryddið létt með salti og pipar.
Bakið í um 30 mínútur, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn — hann á að vera hvítur eða mattur í gegn.
Kryddið réttinn eftir smekk og bætið við grænmeti sem til er í ísskápnum. Berið gratínið fram með fersku salati, grófu brauði og gufusoðnu eða ofnbökuðu grænmeti, svo sem blómkáli eða brokkolí.