Grísk langa

kjotlaust
fiskur

Ljúffengur fiskréttur með Miðjarahafsívafi.

Fiskur og fiskafurðir,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Grísk langa

Aðferð

https://www.jana.is/
  1. Hitið ofninn í 200°C.

  2. Skolið kartöflurnar, skerið þær í teninga og setjið í eldfast mót eða ofnskúffu. Veltið þeim upp úr kaldpressaðri ólífuolíu og kryddið með oreganó og smá salti og pipar.

  3. Setjið kartöflurnar inn í ofn og bakið í 30 til 35 mínútur eða þar til þær eru gylltar að lit. 

  4. Skolið sítrónur og skerið í litlar hálfar sneiðar. Takið utan af hvítlauksrifjum og skerið þau í tvennt. Skolið tómata og skerið í munnstóra bita.

  5. Takið utan af rauðlauk og skerið gróft. Skolið steinselju og saxið gróflega.

  6. Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita (eftir smekk) og raðið í eldfast mót. Dreifið sítrónusneiðum, hvítlauk, tómötum, rauðlauk og steinselju jafnt yfir fiskinn.

  7. Bætið að lokum steinlausum ólífum, restinni af olíunni, kryddblöndu og salatosti yfir réttinn. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.

  8. Setjið fiskinn í ofn og eldið í um 25 mínútur eða þar til hann er fulleldaður.

Nota má ýmsar kryddblöndur í réttinn sem henta vel með fisk eða annars t.d. paprikuduft, laukduft og salt og pipar. Skipta má kartöflum út fyrir sætar kartöflur eða rauðrófur.

Fiskurinn er góður með fersku salati og jafnvel ofnbökuðu blómkáli eða brokkolíi

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
300 
g
Kartöflur
msk
Olía (t.d. kaldpressuð ólífuolía)
tsk
Oreganó
0.25 
tsk
Salt
0.1 
tsk
Pipar
0.5 
stk
Sítróna
rif
Hvítlaukur (eða eftir smekk)
stk
Tómatar
0.25 
stk
Rauðlaukur
g
Steinselja
400 
g
Langa (roð- og beinlaus)
12 
stk
Ólífur (steinlausar, má sleppa)
tsk
Kryddblanda (að eigin vali )
50 
g
Salatostur (eða eftir smekk)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti