Pasta með rækjum og baunapestói
Heilkornapasta með fersku baunapestói, rækjum og grænmeti – einfaldur, litríkur og bragðgóður réttur fyrir alla fjölskylduna.

Heilkornapasta með fersku baunapestói, rækjum og grænmeti – einfaldur, litríkur og bragðgóður réttur fyrir alla fjölskylduna.

Sjóðið pastað í rúmgóðum potti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, oft í um 10-15 mínútur. Geymið smá af soðvatningu til að nota í lokin. Sjá nánari upplýsingar um suðu á pasta.
Sjóðið erturnar í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, oft í um 5 mínútur.
Takið utan af hvítlauk.
Hellið vatninu af soðnu ertunum og maukið þær ásamt hvítlauk og graskersfræjum í blandara eða hakkara þar til allt er gróflega blandað.
Hellið olíunni út í smátt og smátt. Byrjið á hluta olíunnar og bætið síðan við eftir þörfum þar til áferðin verður mjúk og kremkennd.
Ef blandan er of þykk, bætið smám pastavatni við, 1 tsk í einu, þar til hún líkist pestói eða hummus.
Rífið parmesan með rifjárni og hrærið saman við blönduna með sleif. Smakkið til með salti og pipar.
Hitið pönnu með smá olíu við miðlungsháan hita. Ef notaðar eru stórar óeldaðar rækjur steikið þær létt í um 2-3 mínútur á hvorri hlið þar til þær verða bleikar og fallegar. Saltið smá og piprið eftir smekk. Ef notaðar eru foreldaðar litlar rækjur er steikartíminn styttri eða um 1 mínúta.
Flysjið og rífið niður gulrætur. Skolið kirsuberjatómata og skerið til helminga. Afhýðið rauðlauk og skerið í fínar sneiðar. Einnig er hægt að nota sýrðan rauðlauk í staðinn.
Blandið ertupestóinu saman við pastað og bætið smá pastavatni við ef þarf til að hjúpa pastað vel. Það þarf ekki að nota allt pestóið – prófið ykkur áfram og berið afganginn fram með réttinum svo hver og einn geti bætt við eftir smekk.
Berið heilkornapastað fram með afganginum af ertupestóinu, rækjunum og niðurskorna grænmetinu.
Nýtið það ferska grænmeti sem þið eigið í ísskápnum og berið fram með réttinum. Niðurskorin gúrka eða paprika henta til dæmis mjög vel. Prófið að kreysta sítrónu eða lime yfir réttinn til að fríska bragðið og gera hann enn betri.