Plokkfiskur
Þessi klassíski réttur svíkur engan. Frábær leið til að nota afganga af soðnum fiski og kartöflum.
Ef þið þurfið að sjóða fisk og kartöflur þá tekur aðeins lengri tíma að smella í réttinn.

Þessi klassíski réttur svíkur engan. Frábær leið til að nota afganga af soðnum fiski og kartöflum.
Ef þið þurfið að sjóða fisk og kartöflur þá tekur aðeins lengri tíma að smella í réttinn.

Skerið soðnar kartöflur í teninga.Takið utan af lauknum og saxið smátt.
Hitið olíu í hæfilega stórum potti við miðlungshita. Bætið lauknum út í og mýkið í 2–3 mínútur. Stráið heilhveiti yfir og hrærið með sleif eða písk. Bætið mjólk út í smám saman og hrærið stöðugt þar til sósan verður þykk og jöfn.
Rífið soðinn fisk í bita. Bætið fisknum og soðnum kartöflum út í sósuna og hrærið varlega saman með sleif þar til allt er vel blandað og heitt í gegn.
Kryddið með salti og pipar eftir smekk. Skerið tómata í báta og skolið klettasalat (eða salat að eigin vali) sem meðlæti. Skolið steinselju og saxið smátt. Stráið yfir réttinn rétt áður en hann er borinn fram.
Plokkfiskur er klassískur en það þýðir ekki að það megi ekki leika sér með uppskriftina. Það má t.d. nota sætar kartöflur í stað hefðbundinna kartaflna og bæta við spínati eða rifnum gulrótum fyrir auka trefja og næringu. Önnur hugmynd er að strá graskers- eða sólblómafræjum yfir til að fá smá stökkleika.
Það passar vel að bera plokkfisk fram með fersku salati og grófu dönsku rúgbrauði.