Rækjukokteill með nútímalegu tvisti
Litríkur og ferskur rækjukokteill sem hentar fullkomlega sem léttur forréttur um hátíðirnar. Mangó, avókadó og kraftmikil sósa gera hann bæði fallegan og ómótstæðilegan.
Uppgefinn eldunartími tekur ekki til þess tíma sem þarf til að þíða rækjurnar. Gott er t.a.m. að leyfa þeim að þiðna yfir nótt inni í ísskáp.














