Pastasalat með sætri kartöflu og kjúklingi
Litríkt og bragðgott pastasalat sem hentar vel í nestið eða sem léttur kvöldverður. Salatið má undirbúa fyrirfram og taka með sér hvert sem er.
Litríkt og bragðgott pastasalat sem hentar vel í nestið eða sem léttur kvöldverður. Salatið má undirbúa fyrirfram og taka með sér hvert sem er.
Hitið ofn í 225°C.
Skolið sæta kartöflu og papriku. Flysjið rauðlauk. Skerið sætu kartöfluna í hæfilega bita, paprikuna í grófa bita og laukinn í báta.
Setjið grænmetið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Dreypið smá olíu yfir og blandið saman. Kryddið með helmingnum af saltinu og piparnum.
Bakið í miðjum ofni í 20–25 mínútur eða þar til sæta kartaflan er mjúk og farin að taka lit. Takið úr ofninum og látið kólna.
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Hellið vatninu frá að lokinni suðui og setjið pastað í skál, ásamt örlitlu af soðvatninu. Hér má fá leiðbeiningar um suðu á pasta.
Skerið kjúklinginn í litla bita. Hitið afganginn af olíunni á pönnu og steikið kjúklinginn við miðlungsháan hita á báðum hliðum. Kryddið með ykkar uppáhalds kryddum þegar hann er búinn að brúnast vel og eldaður í gegn. Setjið í skál og leggið til hliðar.
Skolið basilíku og þerrið. Afhýðið hvítlauk og rífið fínt. Setjið basiliku, hvítlauk, jógúrt og pipar í skál og hrærið vel saman.
Setjið pastað í stóra skál. Bætið bakaða grænmetinu og kjúklingnum saman við. Kryddið með afganginum af saltinu og piparnum og blandið vel saman.
Skolið klettasalat og þerrið, dreifið því yfir salatið. Berið salatið fram með dressingunni.
Ef þið eigið afgang af grilluðum kjúklingi er tilvalið að nota hann í réttinn. Einnig má skipta kjúklingnum út fyrir kjúklingabaunir, hvítar baunir eða tofu.
Dressinguna er best að geyma sér og bæta við rétt áður en salatið er borið fram.