Pastasalat með baunum og fetaosti
Matarmikið pastasalat sem hentar vel með grillmat eða sem sjálfstæður réttur. Baunir og pasta gefa góða mettun og létt sítrónudressing tengir allt saman.

Matarmikið pastasalat sem hentar vel með grillmat eða sem sjálfstæður réttur. Baunir og pasta gefa góða mettun og létt sítrónudressing tengir allt saman.

Setjið pasta í pott með vatni og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Sjá nánari upplýsingar um suðu á pasta. Hellið vatninu af og látið pasta kólna lítillega.
Skolið baunir og látið renna vel af þeim. Setjið í stóra skál ásamt pastanu.
Skolið kirsuberjatómata og skerið í helming og bætið í skálina.
Skerið grillaða papriku úr krukku í minni bita og bætið út í. Ef þið eigið bara hráa papriku er gott að grilla hana eða ofnbaka til að fá mildara og sætara bragð.
Til að ofnbaka papriku setjið hana á bökunarplötu með bökunarpappír og bakið við 200°C í 15–20 mínútur eða þar til hún mýkist og fær dökka bletti. Ef þið grillið papriku setjið hana á grill í nokkrar mínútur eða þar til hún mýkist og fær fallegan lit. Látið hana kólna lítillega og skerið síðan í bita áður en henni er bætt út í salatið.
Skolið salat og þrerrið og bætið út í.
Myljið fetaost yfir.
Þvoið sítrónu og þerrið. Rífið fínt ysta lag af hýðinu og setjið í skál. Notið sítrónubörk eftir smekk. Kreistið síðan safann úr sítrónunni út í.
Bætið sinnepi og hunangi út í og hrærið saman með skeið. Hellið olíu smám saman út í og hrærið stöðugt þar til dressingin hefur blandast vel.
Hellið dressingunni yfir salatið rétt áður en það er borið fram og blandið varlega saman. Kryddið með pipar eftir smekk.
Bætið við því hráefni sem til er í salatið, til dæmis ólífum, gúrku eða rauðlauk, til að auka fjölbreytni. Einnig má bæta við kjúklingi, túnfiski eða fleiri baunum til að gera salatið enn próteinríkara.
Ef salatið er útbúið fyrirfram er best að geyma það í ísskáp. Bætið ferska salatinu og dressingunni út í rétt áður en það er borið fram svo það haldist ferskt.