Pasta með kjúklingabaunum

graenmetis
kjotlaust

Einfaldur og fljótlegur pastaréttur sem eldaður er í einum potti sem lágmarkar uppvaskið.

Þessi uppskrift uppfyllir kröfur heilkornsmerkisins.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Pasta með kjúklingabaunum

Aðferð

https://fuldkorn.dk/
  1. Skolið gulrætur og papriku og hreinsið sveppina. Skerið síðan gulrætur, papriku, sveppi og hvítkál í munnbitastærð. Takið utan af lauk og hvítlauk og saxið smátt. Kreistið umfram vökva úr spínatinu eftir að það hefur þiðnað.

  2. Hitið olíu á stórri pönnu. Steikið lauk og hvítlauk þar til laukurinn er orðinn glær. Bætið gulrótum og papriku út á pönnuna og síðan sveppum og hvítkáli. Steikið í nokkrar mínútur þar til grænmetið hefur mýkst.

  3. Bætið tómatpúrru, söxuðum tómötum og vatni út á pönnuna og hrærið vel. Skolið basilíku og bætið henni ásamt spínati og pastaskrúfum út í. Látið suðuna koma upp og sjóðið án loks í um 15 mínútur eða þar til pastað er orðið soðið. Sjá nánar um suðu á pasta.

  4. Hellið vökvanum af kjúklingabaununum og skolið þær. Bætið þeim út í ásamt smurosti, salti, pipar og chillíflögum. Hrærið saman og látið malla þar til baunirnar eru orðnar heitar í gegn.

  5. Rífið parmesan með rifjárni og berið fram með réttinum.

Einfalt er að breyta þessum pastarétti og nota bara það grænmeti sem til er í kæliskápnum. Einnig er auðvelt að bæta við kryddum og leika sér með bragðið.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
100 
g
Gulrætur
75 
g
Paprika
50 
g
Sveppir
50 
g
Hvítkál
0.25 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
100 
g
Spínat (frosið)
0.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
15 
g
Tómatpúrra
200 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós)
250 
g
Vatn
100 
g
Pasta (heilhveiti t.d. skrúfur eða penne)
g
Basilíka (fersk, minna ef þurrkuð)
120 
g
Kjúklingabaunir (úr dós)
50 
g
Smurostur (t.d. Philadelphia light)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Chillíflögur (má nota ferskt eða duft)
15 
g
Parmesan
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti