Pasta með chillí og tómötum
Klassískur ítalskur pastaréttur, pasta arrabbiata, með fáum en góðum hráefnum.

Klassískur ítalskur pastaréttur, pasta arrabbiata, með fáum en góðum hráefnum.

Takið utan af hvítlauk og skolið chillí. Saxið hvítlauk og chillí smátt.
Hitið olíu í potti á mjög lágum hita. Bætið chillí og hvítlauk út í. Látið malla í 10 til 20 mínútur þar til olían hefur tekið bragð, en passið að hvítlaukurinn brúnist ekki né brenni.
Þegar hvítlaukurinn byrjar að taka lit bætið tómötunum út í.
Stillið hitann á meðallága stillingu þannig að blandan rétt sjóði. Bætið út í salti, pipar og smá sykri. Smakkið til og bætið meira af chillí út í ef þið viljið sterkara bragð.
Skolið basilíkuna og saxið smátt. Bætið henni út í sósuna og látið krauma án loks í um 15 mínútur eða þar til sósan hefur aðeins þykknað.
Á meðan sósan mallar, sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum, oft er miðað við 10 til 12 mínútur. Sjá nánar um suðu á pasta.
Blandið pastanu saman við tómat- og chillísósuna. Rífið parmesanost með rifjárni og stráið yfir. Skreytið með smá ferskri basilíku.
Óhætt er að prófa sig áfram með magn hvítlauks og chili eftir smekk.
Til að bæta við trefjum og próteini má toppa réttinn með ristuðum svörtum baunum eða linsubaunum. Veltið baununum þá upp úr smá olíu, salti og pipar og ristið í ofni í 10 til15 mínútur, þar til þær verða stökkar og bragðmiklar.
Hægt er að nota t.d. þurrkaða basilíku eða önnur krydd í stað ferskrar en þá minna (þá t.d. 1 tsk í stað 1 dl).