Miðjarðarhafs Tabbouleh
Ljúffengt og ferskt Miðjarðarhafs-tabbouleh, stútfullt af næringu – fullkomið bæði sem meðlæti og léttur réttur!

Ljúffengt og ferskt Miðjarðarhafs-tabbouleh, stútfullt af næringu – fullkomið bæði sem meðlæti og léttur réttur!

Hitið vatn í potti og sjóðið couscous samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Setjið couscousið í skál. Kreistið safa úr sítrónunni og blandið honum ásamt olíu saman við couscousið meðan það er enn volgt. Hrærið vel.
Skolið gúrkuna og skerið hana og sólþurrkuðu tómatana í smáa bita.
Takið utan af rauðlauknum og skolið myntu og steinselju. Saxið rauðlauk, myntu og steinselju fínt og blandið saman við couscousið ásamt gúrkunni og sólþurrkuðu tómötunum.
Það er vel hægt að skipta út couscous fyrir blómkálsgrjón – það bragðast líka virkilega vel og er trefja- og næringarríkur kostur.
Salatið bragðast vel bæði volgt og kalt, hvort heldur sem aðalrétt eða meðlæti, til dæmis með kjúklingi, fiski, tofu, baunum eða lambi. Geymist í ísskáp í um 2–3 daga.
Hægt er að skipta út ferskum kryddjurtum fyrir þurrkaðar, en þá er notað minna eða 1 tsk í stað 1 dl.