Mexíkóskur baunapottur

graenmetis
vegan
kjotlaust

Ljúffengur mexíkóskur baunapottur sem er bæði fljótlegur og ódýr. Bragðmikill réttur sem geymist vel!

Ef notaðar eru þurrkaðar nýrnabaunir þá þarf að leggja þær í bleyti í 8 klukkustundir og sjóða í 2 klukkustundir. 

Mexíkóskur baunapottur

Aðferð

  1. Takið utan af lauk og hvítlauk. Skolið papriku og gulrætur. Saxið lauk, hvítlauk, papriku og gulrætur smátt.

  2. Setjið olíu í stóran pott, helst úr keramiki eða járni, og hitið við miðlungsháan hita þar til olían fer örlítið að krauma. Bætið lauk, papriku og gulrótum út í og steikið í 4–5 mínútur.

  3. Bætið síðan hvítlauk út í pottinn og leyfið að malla í um 1 mínútu til viðbótar. 

  4. Setjið hakkaða tómata út í pottinn ásamt soði og paprikudufti og látið sjóða við vægan hita í 5 til 10 mínútur.

  5. Bætið við baunum þegar 5 mínútur eru eftir af eldunartímanum. Bragðbætið með chillí, broddkúmendufti, salti og pipar.

  6. Skolið steinselju og saxið smátt. Stráið yfir réttinn rétt áður en hann er borinn fram.

Leikið ykkur með réttinn! Bætið við gulrótum, kúrbít, spínati eða öðru grænmeti sem til er í kæli til að gera hann næringarríkari og kraftmeiri. Fyrir meira prótein bætið þá við kjúklingabaunum.

Berið réttinn fram með brúnum hrísgrjónum, kínóa eða grófkorna brauði. Gott er að strá yfir fersku kóríanderi og kreista yfir límónusafa.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
stk
Laukur (má vera gulur eða rauður)
rif
Hvítlaukur
0.5 
stk
Paprika
stk
Gulrætur
0.5 
msk
Olía
200 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós eða passata)
dl
Soð (t.d. grænmetis)
0.5 
tsk
Paprikuduft
240 
g
Nýrnabaunir (úr dós eða þurrkaðar og soðnar)
0.5 
tsk
Chillíduft (eða flögur eða ferskur)
0.5 
tsk
Broddkúmen
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
0.5 
dl
Steinselja (fersk eða þurrkuð en þá nota minna)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti