Mexíkósk súpa

vegan
graenmetis
kjotlaust

Grænmetisútgáfa af mexíkóskri súpu, sem gefur fermingarsúpunni ekkert eftir.

Mexíkósk súpa

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. Skrælið sæta kartöflu og skerið í litla bita. Skolið papriku og gulrót og skerið einnig í litla bita. Skolið og fræhreinsið chillípipar og saxið smátt.

  2. Hitið olíuna í rúmgóðum potti og steikið laukinn í nokkrar mínútur við meðalhita.

  3. Bætið hvítlauk, sætu kartöflunni, gulrótum, papriku og chillípipar út í og steikið í góðan tíma eða þar til allt saman er farið að verða mjúkt.

  4. Bætið broddkúmeni, paprikudufti og oreganó út í og steikið stutta stund.

  5. Hellið nú tómötum, vatni og grænmetiskrafti út í og sjóðið súpuna við meðalhita í 30 mínútur.

  6. Hellið safanum af svörtu baununum, skolið þær vel og bætið að lokum út í súpuna.

Það getur verið gott að setja frosinn maís út í súpuna það gerir súpuna enn girnilegri.  Einnig má bæta í hana t.d. soðnum, rifnum kjúklingi eða nota nýrnabaunir eða pintobaunir í stað svartra bauna. 

Gott að bæta smá slettu af hreinni jógúrt út í súpuna og bera hana fram með límónu sem hægt er að kreista yfir.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.35 
stk
Sætar kartöflur (lítil eða meðalstór)
0.5 
stk
Laukur
1 
rif
Hvítlaukur
1 
stk
Gulrætur
0.5 
stk
Paprika
0.5 
stk
Chillí (ferskur, en má líka vera þurrkaður)
1 
msk
Olía
0.5 
msk
Broddkúmen (oft kallað cumin)
0.5 
msk
Paprikuduft
0.5 
tsk
Oreganó
400 
g
Tómatar, hakkaðir (eða passata)
5 
dl
Vatn
0.5 
msk
Kraftur (grænmetis)
150 
g
Svartar baunir (úr dós, án vökva)
Bæta á innkaupalista
Bæta á dagatal
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti