Ljúffengt lambakjötspasta
Silkimjúk tómatsósa, kryddað lambakjöt og spagettí - það gerist ekki betra.

Silkimjúk tómatsósa, kryddað lambakjöt og spagettí - það gerist ekki betra.

Takið utan af lauk og hvítlauk. Skerið rúmlega helming lauksins í litla bita og saxið eða pressið helming hvítlauksins. Setjið afganginn til hliðar fyrir bollurnar.
Steikið laukinn og hvítlaukinn í olíu á pönnu við vægan hita þar til laukurinn er mjúkur.
Skolið gulrætur og sellerí. Skerið helming gulrótanna og allt selleríið í litla bita. Bætið á pönnuna ásamt hökkuðum tómötum. Setjið restina af gulrótunum til hliðar fyrir bollurnar.
Látið sósuna malla á pönnunni í um 30 mínútur og smakkið til með smá salti og pipar.
Hitið ofninn á 200°C með blæstri og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
Saxið afganginn af gulrótunum, lauknum og hvítlauknum smátt (má nota matvinnsluvél) og setjið í skál. Bætið kjöthakki, eggjum, mjólk, haframjöli, heilhveiti, salti og pipar út í. Hrærið vel saman með sleif eða höndum þar til allt hefur blandast vel.
Mótið litlar kjötbollur með teskeið og setjið á ofnplötu. Bakið kjötbollurnar í um 15 til 20 mínútur í ofninum.
Sjóðið pastað í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakkningunni á meðan bollurnar eru í ofninum. Sjá nánar um suðu á pasta.
Skolið og saxið steinseljuna smátt.
Berið pastað fram með tómatsósunni og kjötbollunum. Toppið réttinn með steinselju.
Skipta má lambahakki út fyrir nautahakk, einnig er um að gera að prófa sig áfram með að krydda réttinn til og nota það grænmeti sem er til í kæli, allt eftir smekk.