Litríkt kjúklingasalat
Bragðmikið og næringarríkt salat með ferskum ávöxtum, stökkum hnetum og krydduðum kjúklingi. Fullkomið sem létt máltíð eða kvöldverður!

Bragðmikið og næringarríkt salat með ferskum ávöxtum, stökkum hnetum og krydduðum kjúklingi. Fullkomið sem létt máltíð eða kvöldverður!

Hitið ofninn í 200°C.
Skerið kjúklingabringur í tvær flatar steikur, reynið að hafa þær jafnþykkar svo steikingin heppnist vel.
Blandið saman í skál olíu og kryddblöndu að eigin vali. Veltið kjúklingabitunum upp úr kryddolíunni og saltið og piprið eftir smekk.
Setjið kjúklinginn í eldfast mót eða á ofnskúffu klædda bökunarpappír. Bakið í 10 mín eða þar til kjötið er eldað í gegn.
Skolið klettasalat. Skolið papriku og vínber og skerið í hæfilega stóra bita. Skerið ólífur í tvennt. Takið hýðið utan af avókadó og mangó og skerið í bita. Sjá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó.
Saxið pekanhneturnar í litla bita. Ristið þær ásamt sólblóma- og graskersfræjum á þurri pönnu við miðlungshita í 2–3 mínútur.
Skerið granateplið í tvennt og haldið því yfir skál með sárið niður. Berjið á börkinn með sleif eða skeið þar til fræin losna og falla í skálina. Passið að hvítar himnur fylgi ekki með.
Skerið eldaða kjúklinginn í smærri bita. Setjið bitana í stóra skál ásamt öllu sem þið hafið undirbúið og blandið vel saman.
Blandið saman í skál olíu og balsamikediki, saltið smá og piprið og hrærið vel saman. Berið sósuna fram með salatinu.
Í þetta salat má nota kjúklingabringur, lundir eða úrbeinuð kjúklingalæri – allt eftir því hvað er við höndina eða hentar best. Kjötið má steikja eða ofnbaka, í heilu lagi eða skorið í bita. Í stað kjúklings má nota tófú eða baunir.
Tilvalið er að skera niður gúrku, blómkál, brokkolí eða annað grænmeti sem til er á heimilinu og bæta við salatið. Einnig er gott að ofnbaka sætkartöfluteninga og bera fram með. Parmesan- eða fetaostur fer vel með salatinu, eftir því sem hverjum og einum þykir best.