Kryddaður og ferskur kínóa morgungrautur

vegan
graenmetis
kjotlaust

Þessi útgáfa af morgungraut er dásamlega haustleg með ilmandi kryddum, ferskum perum og stökkum möndlum.

Hnetur og afurðir úr þeim,
Kryddaður og ferskur kínóa morgungrautur

Aðferð

https://www.jana.is/
  1. Setjið kínóa í sigti og skolið létt undir köldu vatni. Setjið það síðan í pott ásamt vatni, salti, vanillu, kanil, engifer- og kardimommudufti og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum – oft í um 15–20 mínútur. Látið suðuna fyrst koma upp og lækkið þá hitann í næstlægstu stillingu. Látið kínóað malla áfram undir loki þar til allt vatnið hefur gufað upp og kínóað er orðið mjúkt og laust í sér.

  2. Takið steina úr döðlum og saxið smátt. Skolið perur og skerið í teninga. Ristið möndluflögur á þurri pönnu þar til þær verða gullinbrúnar. Finnið til þau ber sem þið ætlið að nota.

  3. Bætið kókosmjólk saman við kínóað þegar það er tilbúið og orðið mjúkt.

  4. Berið grautinn fram í skálum og toppið með döðlum, perum,  möndluflögum og berjum.

Hægt er að flýta fyrir grautnum og sjóða kínóa kvöldið áður og eiga það soðið í boxi inni í ísskáp.

Hægt er að skipta út kókosmjólk fyrir aðra mjólk að eigin vali eða vatn. Skipta á má kínóa út fyrir bygg og nota þau krydd sem eru til í skúffunni hverju sinni.

Grautinn er líka hægt að toppa með skyri eða jógúrti, eplum eða granateplakjörnum og nota sólblómafræ, sesamfræ, hampfræ eða saxaðar valhnetur í staðinn fyrir möndlur - allt eftir því hvað er til í skápunum hverju sinni. 

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
dl
Kínóa
dl
Vatn
0.25 
tsk
Salt
tsk
Vanilla
0.5 
tsk
Kanill
0.25 
tsk
Engiferduft
0.25 
tsk
Kardimommuduft
1.5 
dl
Kókosmjólk
stk
Döðlur (ferskar eða þurrkaðar)
stk
Perur
msk
Möndlur (flögur eða hakkaðar möndlur)
50 
g
Ber (að eigin vali - frosin eða fersk)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti