Kryddaðar möndlur
Einfalt og ljúffengt nasl sem er tilvalið á borðið um hátíðarnar.
Þessi uppskrift er frábær leið til að bæta trefjum inn í mataræðið.

Einfalt og ljúffengt nasl sem er tilvalið á borðið um hátíðarnar.
Þessi uppskrift er frábær leið til að bæta trefjum inn í mataræðið.

Finnið til hæfilega stóra pönnu og hitið upp við meðalháan hita.
Bætið olíunni á pönnu ásamt kanil, broddkúmeni og chillíflögum. Hrærið aðeins í á meðan svo kryddin brenni ekki við. Lækkið síðan hitann svolítið.
Bætið möndlunum út og leyfið þeim að steikjast í 2-4 mínútur. Fylgist vel með og hrærið í þeim af og til.
Lækkið hitann í næstlægstu stillingu og bætið hunanginu út á pönnuna og hrærið öllu vel saman.
Takið pönnuna af hitanum og bætið saltinu við og blandið vel saman.
Leyfið möndlunum að kólna aðeins á pönnunni og setjið þær síðan í skál til að gæða sér á.
Þessar möndlur eru frábærar sem millimál og passa einnig mjög vel yfir salöt þar sem þær gefa bæði skemmtilega stökka áferð og gott bragð. Einnig má nota aðrar hnetur eða jafnvel fræ í staðinn fyrir möndlurnar.
Hægt er að nota hnetur að eigin vali í staðinn fyrir möndlur eða blanda þeim saman.