Kasjú-bananajógúrt

vegan
graenmetis
kjotlaust

Einfaldur og næringarríkur morgunverður eða millimál. Silkimjúk jógúrtblanda með banana og kasjúhnetum sem gefur góða orku inn í daginn.

Hnetur og afurðir úr þeim,
Kasjú-bananajógúrt

Aðferð

  1. Setjið kasjúhneturnar í skál og helltu köldu vatni yfir þær. Látið hneturnar liggja í bleyti í nokkrar klukkustundir. Ef lítill tími er til stefnu má sleppa þessu skrefi og fara beint í það næsta.

  2. Afhýðið banana og setjið í blandara ásamt hnetunum og kókosmjólkinni. Látið blandarann ganga þar til blandan verður slétt og silkimjúk.

  3. Hellið blöndunni í glerkrukku eða stóra skál. Bætið husk-trefjunum við og blandið öllu saman.

  4. Hrærið vanillunni saman við með skeið.

  5. Geymið jógúrtina í lokuðu íláti í ísskáp. Best að neyta innan viku.

Í stað Husk-trefja má nota möluð hörfræ eða duft úr góðgerlahylkjum (tvö hylki ef uppskriftin er fyrir tvo). Ef notaðir eru góðgerla, lokið skálinni með viskastykki eða plastfilmu og festið með teygju eða bandi ef þarf. Geymið blönduna við stofuhita í 6–12 klukkustundir. Setjið vanilluna út í jógúrtina eftir biðtímann.

Hægt er að sleppa banananum og gera einfalda kasjú-kókosjógúrt. Einnig er hægt að prófa sig áfram með mismunandi brögð, til dæmis frosnum eða ferskum berjum eða ávöxtum.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
250 
g
Kasjúhnetur
400 
ml
Kókosmjólk
stk
Bananar (stór eða tveir litlir)
1.5 
tsk
Husk-trefjar (má nota möluð hörfræ eða góðgerlahylki)
0.5 
tsk
Vanilla (dropar eða duft)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti