Indversk baunakássa

kjotlaust
graenmetis

Bragðmikill og kryddaður réttur með kjúklingabaunum, grænmeti og indverskum kryddum - fullkomin með hýðishrísgrjónum eða roti.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Indversk baunakássa

Aðferð

https://salteldhus.is/

    Hrísgrjón

  1. Finnið til pott og sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum, oft í um 10-30 mínútur. Sjá nánari eldunarleiðbeiningar á hrísgrjónum.

  2. Kjúklingabaunakássa

  3. Takið hýðið af lauk og hvítlauk. Saxið laukinn fínt og pressið eða saxið hvítlaukinn. Leggið til hliðar. Skrælið sætu kartöfluna og skerið hana í litla teninga.

  4. Skolið gulrætur og brokkolí og skerið í smáa bita. Skolið spínat en ef notað er frosið spínat, kreistið þá mest af vatni úr því áður en spínatið fer út í réttinn.

  5. Hitið pönnu og setjið olíu á hana. Steikið lauk og hvítlauk í olíunni í 2–3 mínútur.

  6. Bætið næst sætum kartöflum, gulrótum, brokkolíi, spínati og kryddblöndunni út á pönnuna. Steikið áfram í 1–2 mínútur.

  7. Setjið hakkaða tómata, kókosmjólk og hnetusmjör í skál og hrærið saman. Bætið maukinu síðan út á pönnuna og látið malla í um 10 mínútur. 

  8. Skolið appelsínuna og rífið smá af berkinum með fínu rifjárni. Setjið börkinn til hliðar. Kreistið síðan safann úr bæði appelsínunni og sítrónunni.

  9. Hellið vökvanum af kjúklingabaununum og skolið þær vel í sigti undir köldu vatni. Bætið þeim út á pönnuna. Bragðbætið með rifnum appelsínuberki, safanum úr appelsínunni og sítrónusafa.

  10. Bætið grænmetiskrafti og chillí saman við og leyfið að malla í 3-5 mínútur til viðbótar. Bragðbætið eftir smekk t.d. með meiri sítrónusafa, salti og/eða pipar. 

  11. Eplasalat

  12. Skolið epli og skerið í strimla eða teninga og setjið í skál. Blandið jógúrti saman við og smakkið til með smá salti og pipar. 

Berið kjúklingabaunakássuna fram með hýðishrísgrjónunum ásamt fersku eplasalati. 

Hægt er að skipta út hýðishrísgrjónum fyrir t.d. búlgúr eða kínóa. 

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
120 
g
Hrísgrjón (hýðishrísgrjón má nota búlgur eða kínóa)
0.5 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
0.5 
stk
Sætar kartöflur
stk
Gulrætur
stk
Brokkolí
100 
g
Spínat (frosið eða ferskt)
msk
Olía
tsk
Kryddblanda (t.d. garam masala)
200 
ml
Tómatar (hakkaðir í dós eða passata)
200 
ml
Kókosmjólk (t.d. létt)
msk
Hnetusmjör
0.5 
stk
Appelsínur (safinn og börkurinn)
tsk
Sítrónusafi
dl
Kjúklingabaunir (t.d. úr dós)
0.5 
stk
Teningur (t.d. grænmetisteningur)
0.25 
tsk
Chillíduft (valkvætt)
0.1 
tsk
Salt (valkvætt)
0.1 
tsk
Pipar (valkvætt)
stk
Epli
msk
Jógúrt (hreint - t.d. grísk, venjuleg eða ab-mjólk)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti